Skip to product information
1 of 1

natturulega

Markmið og framtíðarsýn - Vision Board námskeið fyrir hópa

Markmið og framtíðarsýn - Vision Board námskeið fyrir hópa

Regular price 19.900 ISK
Regular price Sale price 19.900 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Hefur þú hugleitt markmiðin þín fyrir árið 2024 og hvenig þú ætlar að ná þeim?

Tinna og Lena Magnúsdóttir eru báðar menntaðir markþjálfar og leiða saman hesta sína á þessu námskeiði. Þær hafa báðar nýtt sér sjónræna uppsetningu markmiða til margra ára og haldið fjölda námskeiða þar sem markmið og sjálfsefling eru viðfangsefnið.

Á þessu námskeiði ætlum við að eiga saman góða og nærandi stund  þar sem markmiðin þín eru viðfangsefnið. Námskeiðið gefur þátttakendum tækifæri til þess að rannsaka markmiðasetningu og að setja tóninn fyrir markmið næstu mánaða. Öll fá tækifæri til þess að uppgötva hvernig má laða til sín þann veruleika og framtíðarsýn sem þau vilja skapa það sem eftir lifir þessu ári og hugleiða markmið næsta árs.

Öll eru í sinni persónulegu vegferð á námskeiðinu og fá aðstoð til þess að setja sér skýr, raunhæf og eflandi markmið fyrir næsta ár og setja þau fram á myndrænan hátt (vision board) en sýnt er að myndræn framsetning markmiða skili góðum árangri.

🌱 Þú færð skýra yfirsýn yfir markmiðin þín.
🌱 Markmiðin þín gleymast síður ef þau eru sýnileg.
🌱 Myndræn framsetning heldur þér við efnið og minnir á hvað skiptir máli og tryggir árangur.
🌱 Þú eignast
leiðarvísirinn sem hjálpar þér að hugsa stærra og út fyrir þægindarrammann.
🌱 Þú lærir að virkja aðlöðunaraflið.

Allur efniskostnaður og áhöld eru innifalinn, auk léttra veitinga.

Stéttarfélög greiða mótframlag vegna þessa námskeiðs.

Lena og Tinna bjóða einnig upp á sérsniðin námskeið fyrir vinnustaði, teymi eða hópa að lágmarki 8 manns. Til upplýsinga má senda okkur póst á netfangið tinna@natturulega.is

View full details