natturulega
Tarotspilin til sjálfsræktar - námskeið fyrir byrjendur í janúar 2026
Tarotspilin til sjálfsræktar - námskeið fyrir byrjendur í janúar 2026
Couldn't load pickup availability
Lagar þig að læra að spá í Tarotspil? Þá er þetta námskeið fyrir þig!
20% afsláttur er virkur til 20.desember og dettur sjálfkrafa inn þegar bætt er í körfu.
“Allt um tarotspilin” eru vinsæl Tarotnámskeið, þar sem Tinna kennir fólki að nýta sér tarotspilin til að leita svara við ýmsum málum er varða lífið og tilveruna.
~ miðvikudagur 14. janúar fundur á Zoom kl: 20:00-21:30
~ miðvikudagur 21. janúar fundur á Zoom kl: 20:00-21:30
~ miðvikudagur 28. janúar fundur á Zoom kl: 20:00-21:30
~ miðvikudagur 4. febrúar fundur á Zoom kl: 20:00-21:30
Allt efnið er tekið upp og aðgengilegt í lokuðum hópi á Facebook í 3.mánuði eftir að námskeiðinu lýkur og því góður tími til þess að horfa aftur á fundina, rifja upp og að tileinka sér efni námskeiðsins.
Á þessu námskeiði:
~ Lærir þú að lesa spilin af innsæi og án þess að þurfa stöðugt að kíkja í bók.
~ Lærir auðvelda aðferð að túlka spilin.
~ Kynnist vel táknmyndum tarotspilanna.
~ Lærir um þroskasögu sálarinnar.
~ Lærir að nýta þér Tarotspilin til persónulegs þroska og þróunar.
~ Færð upplýsingar um hvernig er best að spyrja spilin spurninga.
~ Færð upplýsingar um ýmsar góðar lagnir.
~ Lærir að gera Ársspá.
Markmið námskeiðanna er að efla þátttakendur til þess að nýta sér spilin til að spegla lífið og tilveruna og að rannsaka farveginn sem þau standa í og að taka ákvarðanir um framhald.
Námskeiðin eru mjög jarðbundin, vel skipulögð og gagnleg og það reynir á þátttakendur að vinna vel í sjálfum sér á meðan á námskeiðinu stendur. Þátttakendur eru hvattir til að styrkja sig til betra lífs og að rannsaka í gegnum spilin hvernig er hægt að ná meiri og betri árangri í lífinu - að upplifa meira.
Umsögn:
"Vá hvað ég er glöð að hafa látið verða af því að skrá mig á tarot námskeið hjá Tinnu! Mig hefur lengi langað til að læra meira á spilin og fá leiðsögn. Tinna er alveg ótrúlega frábær kennari, mjög lifandi og skemmtileg og hún útskýrir og fer yfir spilin á svo aðgengilegan og skýran hátt. Hún hefur grúskað lengi í tarotspilunum og það er alveg greinilegt, hún býr yfir miklum fróðleik og öryggi og það er frábært að hafa kennara sem lifir og hrærist í því sem hann kennir .
Þetta námskeið fæst niðurgreitt hjá Stéttarfélögum.
