Skip to product information
1 of 9

natturulega

Nornahringur haust 2026

Nornahringur haust 2026

Regular price 13.000 ISK
Regular price Sale price 13.000 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Velkomnar í Norna-þróunarhóp með Tinnu haustið 2026 ✨

Vegna fjölda áskorana er loksins komið að því að bjóða upp á Norna-þróunarhóp haustið 2026 fyrir allar nornir sem vilja styrkja tengslin sín við innsæið, spádóma, frumkrafta náttúrunnar og sig sjálfar. 

Á fjögurra mánaða tímabili munum við ferðast saman í gegnum jörð, loft, eld og vatn og kynnast betur fjölbreyttum leiðum til þess að rannsaka lífið og tilveruna frá ýmsum sjónarhornum.

Við tengjumst tarotspilunum og talnaspeki, lærum nýjar leiðir til að spyrja spilin, gerum nornarúnir, skoðum saman áhrif tunglsins og kynnumst leiðum til að efla okkur sjálfar út frá tunglstöðunum hverju sinni. Við skoðum líka stjörnukortin okkar og stöðu himintunglana og hugleiðum líka krafta náttúrunnar út frá elementunum. 

Athugið að þátttaka kostar 13.000 á mánuði. Þú greiðir fyrsta mánuðinn núna til að staðfesta þátttöku og færð svo reikning sömu upphæðar í heimabanka í byrjun hvers mánaðar; samtals í 3 skipti. 

Hópurinn hittist á Zoom fyrsta og þriðja hvern fimmtudag í mánuði frá september til desember og þess á milli tengjumst við í lokuðum hópi á Facebook þar sem við fáum tækifæri til að spjalla og spyrja spurninga, auk þess sem ný fræðsla og upplýsingar berast í hópinn í hverri viku. Allir fundir eru teknir upp og aðgengilegir í hópnum á Facebook. Að auki verður boðið upp á Nornasasamveru í Reykjavík í raunheimum á tímabilinu og allir þátttakendur fá boð í Nornagusu hjá Tinnu. 

Upphafsfundur er fimmtudaginn 3.september kl.20:00 á Zoom.

Hvað er innifalið:
🍀 Persónulegur Tarotlestur hjá Tinnu á tímabilinu.
🍀 Nornagusa í Reykjavík á tímabilinu fyrir þær sem kjósa.
🍀 Rafrænn fundur tvisvar sinnum í mánuði þar sem áherslur mánaðarins eru kynntar og hópurinn fær tækifæri til að tengjast, spjalla og spyrja spurninga.
🍀 Verkefni og heimavinna í hverjum mánuð sem styrkir tengslin okkar við tarotspilin, tunglið, elementin og okkur sjálfar.
🍀 Nornasamvera í Reykjavík í raunheimum á tímabilinu og sem verður auglýst með góðum fyrirvara.
🍀 Falleg dagbók til að skrá ástundun og ásetning.
🍀 Lokaður Facebook hópur fyrir hópinn til að tengjast og spjalla.
🍀 Fræðsla um ýmsar leiðir til spádóma, upplýsingar um tarotspilin, um talnaspeki, um stjörnuspeki og um krafta tunglsins og frumkrafta náttúrunnar.
🍀 Óvæntir gestir og jafnvel uppákomur sem fæðast á tímabilinu.

 

View full details