natturulega
AUSTUR ullarteppi frá Steinholt & Co.
AUSTUR ullarteppi frá Steinholt & Co.
Couldn't load pickup availability
AUSTUR ullarteppi er úr íslenskri ull og framleitt á Íslandi til heiðurs Austurlandi og Steinholti, fallega húsinu við Austurveg 22 á Seyðisfirði þar sem við hjá Steinholt & Co. rekum verslunina okkar á sumrin.
Litirnir í teppinu eru karrýgulur og grár og ráðast þeir af upprunalegu litum Steinholts sem húsið skartar nú aftur eftir nýlegar endurbætur. Guli liturinn vísar einnig til sólarupprásar sem alltaf vex í austri og sem er tákn fyrir nýja byrjun og nýjan dag. Grái liturinn er austfjarðaþokan og íslenska kindin í sínu náttúrulega litrófi.
Munstrið er innblásið af náttúrunni og landslagi Austfjarða. Teppið er tvöfalt og speglast því munstrið í litunum á hvorri hlið.
Teppið kemur pakkað í lífrænum bómullar "tote" poka frá Steinholt & Co. Teppið er framleitt í takmörkuðu upplagi.
Pantanir: tinna@natturulega.is








