Skip to product information
1 of 8

natturulega

Nornagusa - nýtt tungl í Meyju

Nornagusa - nýtt tungl í Meyju

Regular price 5,500 ISK
Regular price Sale price 5,500 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Tinna gusar í Fúsk Skerjafirði laugardaginn 12.september kl.16:00 🔥
Það er UPPSELT í gusuna en hægt að vera á biðlista ef eitthvað skyldi breytast í hópnum. Hafðu samband til að vera á BIÐLISTA: tinna@natturulega.is

Við ætlum að njóta saman yfir þrjár töfrandi lotur í hitanum þar sem við leyfum tónlistinni að hreyfa við okkur og kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja.

Þetta verður einstök stund undir nýju tungli í merki Meyjunnar og við sækjum mjúka og nærandi orku í náttúruna á þessu nýja tungli. Einkunnarorð Meyjunnar eru jörð, öryggi, vinnusemi, vandvirkni og samviskusemi. Við hlustum því meðal annars inn í gott dagskipulag og hugleiðum hvernig góð og heilbrigð rútína í daglegu lífi lítur út fyrir okkur.

Við vinnum líka markvisst með að sýna okkur mildi og að senda innri gagnrýnandann í verðskuldað frí. Við erum nefnilega fullkomlega ÓKEI eins og við erum akkúrat núna að lesa þennan texta ❤️
View full details