Skip to product information
1 of 5

natturulega

Nornagusa á fullu tungli í Hrúti - 26.sept kl.14:00

Nornagusa á fullu tungli í Hrúti - 26.sept kl.14:00

Regular price 5.500 ISK
Regular price Sale price 5.500 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Tinna gusar á fullu tungli í Fúsk í Skerjafirði þann 26.september kl.14:00 🔥

Við ætlum að njóta saman í hitanum yfir þrjár töfrandi lotur þar sem við leyfum tónlistinni og sérvöldum ilmum úr náttúrunni að hreyfa við okkur. Við kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja. 

Þetta verður einstök stund á fullu tungli í merki Hrútsins og þá eru kjör aðstæður til að tengjast betur lífsorkunni, eldinum innra með okkur sjálfum og kraftinum til framkvæmda. Við göngumst við því hver við sannanlega erum, sleppum öllu pjatti eða nákvæmni og nú má leyfa hvatvísi að hreyfa við okkur um stund 🍀

Þetta verður líka góð stund til að rannsaka innra með sér hvar í lífinu við erum tilbúin til að sleppa tökunum og að hugleiða hvaða skref við viljum taka til að losa um það sem við þurfum ekki lengur á að halda.  Við setjum okkur ásetning í þessari stund og leyfum innsæinu að stýra ferðinni.

Ég hlakka til að taka á móti ykkur. 
Verið hjartanlega velkomin ❤️
Tinna 
View full details