Skip to product information
1 of 5

natturulega

Nornagusa - sunnudagur 8.nóvember kl.11:00

Nornagusa - sunnudagur 8.nóvember kl.11:00

Regular price 5,500 ISK
Regular price Sale price 5,500 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Tinna gusar í Fúsk í Skerjafirði á nýju tungli í Sporðdreka, sunnudaginn 8.nóvember kl.11:00 🔥

Við ætlum að njóta saman í hitanum yfir þrjár töfrandi lotur og þar sem við leyfum hitanum, tónlistinni og sérvöldum ilmum úr náttúrunni að hreyfa við okkur. Við kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja.

Þetta verður einstök stund í aðdraganda nýja tunglsins í Sporðdreka, en tunglið verður alveg myrkvað á mánudaginn. Nú er tækifæri til að sleppa tökunum, losa um og að hreinsa út allt það sem við þurfum ekki lengur á að halda. Nýtum þetta tækifæri að leysa upp (tilfinninga)munstur sem þjóna okkur ekki lengur. Við setjum okkur ásetning í stundinni og leyfum hjartanu og innsæinu að stýra ferðinni.  

Ég mæti að sjálfsögðu með spilin og öll geta dregið spil fyrir spurningu og fengið aðstoð við túlkun 🍀

Ég hlakka til að taka á móti ykkur.
Verið hjartanlega velkomin ❤️

View full details