natturulega
Inn í vorið - nærandi gusa þriðjudaginn 28.apríl kl.20:00
Inn í vorið - nærandi gusa þriðjudaginn 28.apríl kl.20:00
Regular price
5.000 ISK
Regular price
Sale price
5.000 ISK
Unit price
per
Tax included.
Shipping calculated at checkout.
Couldn't load pickup availability
Benedikta og Tinna leiða saman krafta sína í þessari gusu í Fúsk í Skerjafirði, þriðjudaginn 28.apríl kl. 20:00
Apríl býður okkur að vakna til lífsins og í þessari gusustund leggjum við áherslu á djúpa slökun, ró og tengingu við náttúruna og vorið. Gusan samanstendur af þremur mjúkum og nærandi lotum, þar sem Ilmur, hiti og kyrrð vinna saman að því að hægja á taugakerfinu og að opna fyrir innri hlustun og nærveru. Tinna verður að auki með spilin til leiðsagnar fyrir þá sem vilja skyggnast inní þann heim.
Við byrjum stundina með leiðsögn frá tarotspilunum fyrir þau sem kjósa og höldum áfram inn í hitann með hlýju steinanuddi og hreinsandi olíu og lokum stundinni með ljúfri hunangsnæringu fyrir andlit.
Tónlistin styður við jarðtengingu og opnun fyrir innsæið og skapar rými fyrir djúpa tengingu og hlustun við viskuna innra með okkur sjálfum. Við æfum núvitund og setjum okkur ásetning í þessari stund.
Verið hjartanlega velkomin ❤️
