Skip to product information
1 of 5

natturulega

Nornagusa á fullu tungli í VOG 🔥

Nornagusa á fullu tungli í VOG 🔥

Regular price 5.500 ISK
Regular price Sale price 5.500 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Tinna gusar á fullu tungli í Fúsk í Skerjafirði þann 2. apríl kl.18:00

Við ætlum að njóta saman yfir þrjár töfrandi lotur í hitanum þar sem við leyfum tónlistinni að hreyfa við okkur og kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja.
Þetta verður einstök stund undir fullu tungli í merki Vogarinnar og við sækjum okkur milda og nærandi orku í náttúruna á þessu fulla tungli. Við tendrum líka bálið úti ef veður og vindar leyfa 🔥

Einkunnarorð Vogarinnar eru jafnvægi, fágun, næmi fyrir umhverfinu og leikni í samskiptum við aðra. Við ætlum að hugleiða þessa styrkleika Vogarinnar og rannsaka hvernig þessi sömu eiginleikar birtast í okkur. Svo er tækifæri að finna betra jafnvægi í samskiptum við aðra OG við okkur sjálf líka. Þetta fulla tungl ýtir við þeirri tilfinningu að það sem er innra, passi því ytra, þ.e. við ætlum að hlusta á innsæið og sækja okkur það jafnvægi sem við viljum skapa í raunveruleikanum.
View full details