Skip to product information
1 of 7

natturulega

Nornagusa á fullu tungli í Bogamanni

Nornagusa á fullu tungli í Bogamanni

Regular price 5.500 ISK
Regular price Sale price 5.500 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Tinna gusar á fullu tungli í Fúsk í Skerjafirði sunnudaginn 31.maí kl.17:00 🔥

Það er uppselt í gusuna kl. 17:00 - en önnur gusa er komin í farveg kl. 19:30. 
Hér er hlekkur: Gusa kl.19:30

Við ætlum að njóta saman í hitanum yfir þrjár töfrandi lotur þar sem við leyfum tónlistinni og sérvöldum ilmum úr náttúrunni að hreyfa við okkur. Við kælum svo á milli undir beru lofti eða í sjónum fyrir þau sem vilja.

Þetta verður einstök stund á fullu tungli í merki Bogamannsins og þá eru kjör aðstæður til þess að skoða innra með okkur hvað það er sem við gerum til að tengjast betur okkur sjálfum. Orka Bogamanns miðlar til okkar jákvæðni, bjartsýni og þeirri þörf að hreyfa við lífinu. Við skoðum innra með okkur ásetning í þessar stund og hugleiðum hvað það er sem við þurfum að losa okkur við, áður en við ákveðum fyrstu skrefin í átt að nýju markmiði 🔥

Við sækjum okkur orku og endurnýjaðan kraft í þessari stund og þar sem við leyfum innsæinu að sitja í öndvegi og að stýra ferðinni 🍀

Ég hlakka til að taka á móti ykkur. 
Verið hjartanlega velkomin ❤️

Tinna 

View full details